|
Jólamarkaður og jólaföndur HFÍ á Árbæjarsafni |
|
|
|
|
Skrifað af: Administrator
|
|
Fimmtudagur, 10. desember 2009 09:48 |
|
Mikil ánægja hefur verið með jólamarkað og jólaföndur Heimilisiðnaðarfélagsins á Árbæjarsafni undanfarin ár. Þeim góða sið verður því haldið áfram á Kornhúslofti Árbæjarsafns sunnudagana 6., 13. og 20. desember milli kl. 13 og 17. Í ár verður markaður og föndur alla þessa daga. Félagsmönnum og velunnurum er boðið að selja eigin afurð eða handverk á markaðinum okkar. Sú nýbreytni verður að afurð má vera matarkyns. Mikilvægt fyrir þá sem ætla að selja á markaði: vegna skipulags þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eigi síðar en á fimmtudegi fyrir hverja helgi og láta vita hvaða handverk eða afurð þeir ætla að selja. Þeir sem ætla að selja mæta á Kornhúsloftið kl. 12.30 á sunnudögum til að stilla upp.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 18. desember 2009 09:25 |