Prjónakaffi
Prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins, sem haldið er í Amokka í Borgartúni 21a, Reykjavík mánaðarlega, fyrsta fimmtudag í mánuði, kl. 20.00. Hægt er að koma fyrr og fá léttan kvöldverð.
Prjónakaffið er frábær vettvangur handverksfólks til að hittast og bera saman bækur sínar og verkefni. Í hverju prjónakaffi kemur gestur og kynnir hugðarefni sitt, eitthvað sem tengist handverki á einhvern hátt.
Munið nýjan stað: Amokka er í Borgartúni 21a Reykjavík.
ALLIR ERU VELKOMNIR Í PRJÓNAKAFFI.
Opið hús
Þriðja hvern miðvikudag, kl. 13:00 - 16:00 er opið hús í Nethylnum. Þá bjóðum við öllum félagsmönnum og gestum þeirra sérstaklega í heimsókn. Það er heitt á könnunni og oftast eitthvert meðlæti.
Það er hægt að koma með handavinnuna með sér, eða ekki, og eiga notalegt spjall við starfsmenn HFÍ og aðra félagsmenn.
VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN.
Hannyrðakvöld
Þriðja hvert föstudagskvöld, kl. 20:00 - 22:00 er hannyrðakvöld í Nethylnum. Félagsmenn koma saman og gera handavinnuna sína í góðra vina hópi. Allir félagsmenn og gestir þeirra eru velkomnir.
Það er gott og gefandi að hittast, sýna sitt og sjá hjá hinum, fá góðar hugmyndir og gefa af sér.
ÆVINLEGA VELKOMIN!!