Sjónabók

Íslensk sjónabók   /   Ornaments and Pattern found in Iceland

Sjónabók er handrit með munstrum sem notuð voru í útsaumi, vefnaði og til ýmissa hannyrða áður fyrr. Heimilisiðnaðarfélag Íslands í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands gáfu út Íslenska sjónabók vorið 2009.

Þar má finna íslensk munstur frá 17, 18 og 19 öld sem varðveitt eru í 10 handritum á Þjóðminjasafninu og Þjóðminjasafni Dana og eru hér í einni bók sem telur um 700 blaðsíður.Texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku.

Bókinni fylgir geisladiskur með öllum munstrunum sem hægt er að prenta út að vild. Allt til frjálsrar notkunar í hönnun, handverk og kennslu. Íslensk sjónabók á að vera brunnur hugmynda að nýsköpun með sterka tilvísun í sérstakan íslenskan menningararf. 

Bókin fæst m.a.í verslun okkar. Verð kr. 17.200.-  Sendum út á land að viðbættum póstkröfukostnaði. Netfangið okkar er This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Heimilisfang

Heimilisiðnaðarfélagið

Nethyl 2e

110 Reykjavík

 

 

Hafðu samband

Sendu okkur tölvupóst á hfi@heimilisidnadur.is

Hringdu í síma 551 5500

Kíktu til okkar í Nethyl 2e

You are here