Egypskur spjaldvefnaður - FELLUR NIÐUR

Egypskur spjaldvefnaður 

Kennari:  Ólöf Einarsdóttir 

Lengd námskeiðs:  2 skipti = 6 klst. 

Tími:   fimmtudaga kl. 17:30 - 20:30

Námskeiðsgjald: 17.880 kr. (16.090 kr. fyrir félagsmenn) 

Þessi spjaldvefnaðargerð er kennd við Egyptaland, en mynstrið myndar þríhyrninga og tígla sem vel minna á Egypsku pýramídana fornu. Oftast eru notaðir tveir litir og dregið er inn í spjöldin eftir ákveðnu mynstri og spjöldunum síðan snúið á sérstakan hátt til að fá fram mynstrið. þetta námskeið hentar sérstaklega þeim sem hafa áður lært grunninn í spjaldvefnaði. 

Spjaldvefnaðurinn er ævagamalt handverk sem barst hingað til lands með landnámi en á sér miklu lengri sögu – allt að 3000 ára.

Eins og nafnið gefur til kynna eru spjöld notuð til verksins, ferhyrnd, u.þ.b. 8-10 cm á hverja hlið og eru fjögur göt á hverju spjaldi. Bönd eru ofin með spjaldvefnaði og ákvarðast breidd bandanna af fjölda spjaldanna.