Eplakarfa/prjónakarfa
Kennari: Margrét Guðnadóttir
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.
Tími: 10. og 17. október – mánudaga kl 18-21.
Námskeiðsgjald: 21.900 kr. (19.710 kr. fyrir félagsmenn) – efni er innifalið.
Kennd eru undirstöðuatriði í kröfuvefnaði en námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Nemendur læra að gera stóra og myndarlega körfu. Körfugerðin tekur tvö kvöld með heimavinnu. Hægt er að skreyta körfuna á ýmsan hátt t.d. með lituðum tágum og snæri. Kennt verður að lita körfuna í lok námskeiðs.