Lissuskyrta á Akureyri

Lissuskyrtunámskeið á Akureyri 

Kennari: Elizabeth Katrín Mason og Oddný Kristjánsdóttir

Lengd námskeiðs: 3 skipti – 18 klst

Tími: Máltaka – 18. janúar kl 17-18 (með fyrirvara)

Lissur 18. febrúar og 18. mars laugardagar kl 10-13 og 14-17

Skyrtusaumur  20.-21. maí. Laugardagur og sunnudagur kl 10-13

 Verð: 88.500 krónur (79.650kr fyrir félagsmenn) efni ekki innifalið

Vel þekktar eru skyrtur með handgerðu blóma- eða hringmynstri í hálsmáli og á ermum en slíkar skyrtur voru vinsælar um seinni hluta 20. aldar og áhugi á þeim hefur aukist síðustu ár. Mynstrið er gert úr svokölluðum lissum (efnisrúllum) sem snúnar eru í hin ýmsu munstur. Á námskeiðinu læra nemendur aðferðina við að gera lissur og búa til úr þeim munstur

Námskeiðinu er skipt í 2 hluta annarvegar að læra aðferðina við að gera lissurnar og munstrið og hins vegar að sauma skyrtuna sjálfa. Umtalsverð heimavinna fylgir námskeiðinu og mikilvægt er að nemendur séu búnir með lissustykkin og skili þeim og hálfsaumaðri skyrtunni inn í lok apríl þannig að hægt sé að undirbúa skyrtusaumstímann sem best.

Námskeiðið hefst með máltöku í janúar. Í febrúar og mars  kennir Elizabeth lissur á laugardegi, nemendum gefst tækifæri til að vinna áfram sjálfstætt á sunnudegi á laugarlani. Ekki er tími í apríl.  Í maí mæta nemendur og sauma skyrtuna hjá Oddnýju, fyrir hádegi laugardag og sunnudag (nemendum gefst kostur á að vinna heimavinnuna sína sjálfstætt á Laugalandi eftir hádegi).