Litafræði
Kennari: Helga Jóhannesdóttir, litafræðingur, hönnuður og textílkennari.
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 4 klst.
Tími: 10. og 17. mars - miðvikudagar kl 18-20
Námskeiðisgjald: 13.000 kr. (11.700 kr. fyrir félagsmenn) - efni er innifalið
Á námskeiðinu læra nemendur grunnatriði í litafræði. Námskeiðið er bæði í formi fyrirlesturs og æfinga. Teknar eru fyrir leiðir til að vinna með litaval og litasamsetningar. Farið er í efnisfræði lita, t.d. áhrif lita á mismunandi textíl. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem stunda vefnað eða prjónaskap.