Myndvefnaður
Kennari: Ólöf Einarsdóttir.
Lengd námskeiðs: 6 skipti = 18 klst.
Tími: 29. september, 6., 13., 20. og 27. október og 3. nóvember - þriðjudaga kl. 17:30 - 20:30.
Námskeiðsgjald: 50.400 kr. (45.360 kr. fyrir félagsmenn) - efni er innifalið.
Ofið er á blindramma. Myndvefnaður býður upp á marga möguleika í efnisvali og útfærslum. Nemendur hugi að myndefni fyrir námskeiðið, t.d. ljósmynd eða teikningu. Uppistaða strekkt á blindramma og efni valið í ívaf. Farið er í handbrögð, ýmsar vefnaðaraðferðir, frávik og frágang á myndum.