Myndvefnaður
Kennari: Ólöf Einarsdóttir.
Lengd námskeiðs: 6 skipti = 18 klst.
Tími: 26. október, 2., 9., 16., 23. og 30. nóvember - þriðjudaga kl. 17:30 - 20:30.
Námskeiðsgjald: 54.500 kr. (49.050 kr. fyrir félagsmenn) - efni er innifalið.
Ofið er á blindramma. Myndvefnaður býður upp á marga möguleika í efnisvali og útfærslum. Nemendur hugi að myndefni fyrir námskeiðið, t.d. ljósmynd eða teikningu. Uppistaða strekkt á blindramma og efni valið í ívaf. Farið er í handbrögð, ýmsar vefnaðaraðferðir, frávik og frágang á myndum.
Hámarksfjöldi nemenda er átta.