Myndvefnaður

Myndvefnaður

Kennari: Ólöf Einarsdóttir.

Lengd námskeiðs:  5 skipti = 15 klst.

Tími: 22. og 29. september, 13., 20. og 27. október kl. 17:30 - 20:30. ATH að ekki er tími 6. október 

Námskeiðsgjald: 48.000 kr. (43.200 kr. fyrir félagsmenn) - efni er innifalið.

Ofið er á blindramma. Myndvefnaður býður upp á marga möguleika í efnisvali og útfærslum. Nemendur hugi að myndefni fyrir námskeiðið, t.d. ljósmynd eða teikningu. Uppistaða strekkt á blindramma og efni valið í ívaf. Farið er í handbrögð, ýmsar vefnaðaraðferðir, frávik og frágang á myndum.

Hámarksfjöldi nemenda er átta.