Refilsaumur

Kennari: Dóra Guðrún Ólafsdóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.

Tími: 15. og 22. mars - miðvikudagur kl. 18 - 21.

Námskeiðsgjald: 18.900 kr. (17.010 kr. fyrir félagsmenn) - nál, efni og garn er innifalið.

Refilsaumur er forn útsaumsaðferð en reflar skreyttu hús og kirkjur á miðöldum. Útlínur eru saumaðar fyrst og síðan er fyllt inn í fletina. Að lokum eru saumaðar aukaútlínur, andlit eða önnur atriði sem þurfa áherslu. Refilsaumur er einstaklega fallegur til að sauma út myndir og fyllta fleti. Nemendur læra aðferðina og sauma litla mynd.

Hámarksfjöldi nemenda er átta.