Svartsaumur - námskeið - FULLBÓKAÐ

Svartsaumur

Kennari: Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.

Tími: 8. og 11. nóvember, mánudagur og fimmtudagur kl. 17-20

Námskeiðsgjald: 19.800 kr. (17.820 kr. fyrir félagsmenn) - nál, efni og garn í prufur innifalið.

Kennd eru grunnatriði svartsaums en aðferðin gengur út á að sauma myndir og munstur með svörtu þræðispori. Gerðar eru prufur en þátttakendur velja sér jafnframt viðfangsefni og hentar námskeiðið því vel bæði byrjendum og lengra komnum. Í seinni tímanum er farið í frágang. Efni í frekari verkefni fæst í verslun HFÍ. Nemendum sem nota stækkunargler er bent á að hafa þau með.