Tvöfalt prjón - örnámskeið - DAGSETT SÍÐAR

Tvöfalt prjón - Örnámskeið!               

Kennari: Lilja Birkisdóttir.

Lengd námskeiðs: 1 skipti = 3 klst.

Tími: Dagsett síðar

Námskeiðsgjald: 8.940 kr. (8.050 kr. fyrir félagsmenn) – efni ekki innifalið.

Á námskeiðinu læra nemendur tvöfalt prjón, þar sem réttan er beggja vegna. Sami litur er aðallitur öðru megin en munsturlitur hinumegin. Nauðsynlegt er að nemendur kunni að prjóna þar sem námskeiðið er ein kvöldstund. Nemendur komi með 80 cm langan hringprjón no. 3 eða 3,5. Garn í tveimur litum sem hentar prjónastærð.