Umsjónartími í þjóðbúningasaum í Október - FULLBÓKAÐ

Umsjónartímar í þjóðbúningasaumi

Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Kristín Vala Breiðfjörð 

Tími: 1. Október, 5. nóvember og 5. desember - laugardaga kl. 10 - 13.

Námskeiðsgjald: 9.000 kr. skiptið (8.100 kr. fyrir félagsmenn).

Umsjónartímareru ætlaðir þeim sem vinna að faldbúningi, skautbúningi eða kyrtli - sjá www.buningurinn.is. Í tímunum fá nemendur einstaklings­miðaða aðstoð við fjölbreytt verkefni. Hver tími er stakur og getur því hentað vel sem aukatími fyrir minni verkefni tengd þjóðbúningasaumi, til dæmis skyrtu- og svuntusaum eða lagfæringar á eldri búningum.