Umsjónartími í þjóðbúningasaum - 5. desember

Umsjónartímar í þjóðbúningasaumi

Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Inda Dan Benjamínsdóttir.

Tími: 3. Október, 7. nóvember og 5. desember - laugardaga kl. 10 - 13.

Námskeiðsgjald: 8.800 kr. skiptið (7.900 kr. fyrir félagsmenn).

Umsjónartímareru ætlaðir þeim sem vinna að faldbúningi, skautbúningi eða kyrtli - sjá www.buningurinn.is. Í tímunum fá nemendur einstaklings­miðaða aðstoð við fjölbreytt verkefni. Hver tími er stakur og getur því hentað vel sem aukatími fyrir minni verkefni tengd þjóðbúningasaumi, til dæmis skyrtu- og svuntusaum eða lagfæringar á eldri búningum.