Umsjónartími í þjóðbúningasaum - 5. febrúar

Umsjónartímar í þjóðbúningasaumi

Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Kristín Vala Breiðfjörð.

Tími: 5. febrúar - laugardag kl. 10 - 13.

Námskeiðsgjald: 8.940 kr. skiptið (8.046 kr. fyrir félagsmenn).

Umsjónartímareru ætlaðir þeim sem vinna að faldbúningi, skautbúningi eða kyrtli - sjá www.buningurinn.is. Í tímunum fá nemendur einstaklings­miðaða aðstoð við fjölbreytt verkefni. Hver tími er stakur og getur því hentað vel sem aukatími fyrir minni verkefni tengd þjóðbúningasaumi, til dæmis skyrtu- og svuntusaum eða lagfæringar á eldri búningum.

Skráning fer fram á [email protected]