Undirpils fyrir þjóðbúning - FELLUR NIÐUR

Undirpils fyrir þjóðbúninga

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst. 

Tími: 19. og 26. nóvember - fimmtudaga kl. 18:30 - 21:30.

Námskeiðsgjald: 19800 kr. (17.820 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Undir þjóðbúninga er gott að bera undirpils, bæði þægindanna og útlitsins vegna. Á námskeiðinu er saumað undirpils fyrir 19. eða 20. aldar þjóðbúning. Pilsið er klæðskerasniðið, nemendur mæta fyrir fyrsta kennslutíma í máltöku og efnisval. Allt efni er fáanlegt í verslun HFÍ.