Undirpils fyrir þjóðbúning

Undirpils fyrir þjóðbúninga

Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst. 

Tími: 18. og 25. nóvember, fimmtudagar kl 18.30-21.30 

Námskeiðsgjald: 27.600 kr. 24.840 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.

Undir þjóðbúninga er gott að bera undirpils, bæði þægindanna og útlitsins vegna. Á námskeiðinu er saumað undirpils fyrir 19. eða 20. aldar þjóðbúning. Pilsið er klæðskerasniðið, nemendur mæta fyrir fyrsta kennslutíma í máltöku og efnisval. Allt efni er fáanlegt í verslun HFÍ.

EFNI: Nokkuð úrval er af efnum og blúndum í verslun okkar í Nethylnum en einnig er velkomið að koma með eigið efni. Til viðmiðunar þarf 2m af efni í vanalegri breidd (1,4-1.5 m) og 3,7m af blúndu. Ef efnið er þunnt er viðmiðið 2,5m efni og 5,2m af blúndu.

Hámarksfjöldi nemenda er átta.