Uppsetning á krosssaumi Karólínu - dagnámskeið

Uppsetning á krosssaumi Karólínu - dagnámskeið

Kennari: Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuður

Lengd námskeiðs: 1 skipti = 4 klst.

Tími: 9. febrúar miðvikudagur kl. 11 - 15

Námskeiðsgjald: 13.900 kr. (12.530 kr. fyrir félagsmenn) - nemendur mæta með eigin útsaumaðan krosssaum Karólínu. Rennilás og svart efni er innifalið.

Á námskeiðinu er kennt að setja upp krosssaum Karólínu í púða. Svart efni í umgjörð og bak ásamt rennilás er innifalið en nemendur koma með sinn eigin krosssaum og púðafyllingu. Nemendur þurfa að koma með saumavél. (Hægt að fá lánaða á staðnum, en þá þarf að láta vita fyrirfram).

Hámarksfjöldi nemenda er átta.