Uppsetning á púðum
Kennari: Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuður.
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.
Tími: 13. og 20. janúar- miðvikudaga kl. 19 - 22.
Námskeiðsgjald: 16.800 kr. (15.120 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.
Á námskeiðinu er kennt að setja upp útsaum í púða. Nemendur komi með nýjan eða gamlan útsaum og læra að setja upp. Efni í umgjörð og bak ásamt rennilásum er hægt að kaupa á staðnum en einnig er hægt að koma með sitt eigið. Nemendur þurfa að koma með saumavél (hægt að fá lánaða saumavél á staðnum, ef þess þarf vinsamlegast látið vita fyrir fram).