Vefnaðarnámskeið - framhaldsnámskeið - FULLBÓKAÐ

Vefnaðarnámskeið – framhaldsnámskeið

Kennari: Sigríður Ólafsdóttir.

Lengd námskeiðs: 5 skipti = 19 klst.

Tími: 20. og 21. mars - laugardagur og sunnudagur kl. 10-15, 23. og 31. mars og 7. apríl - miðvikudagur kl 18-21

Námskeiðsgjald: 56.620 kr (50.950 kr. fyrir félagsmenn) - vefjarefni er ekki innifalið.

Námskeiðið er ætlað þeim sem áður hafa komið á námskeið eða hafa reynslu af vefnaði. Allir þátttakendur fá vefstól til umráða. Kennari aðstoðar við val á verkefnum og leiðbeinir við útreikninga og uppsetningu. Viðvera kennara er talsverð í upphafi námskeiðsins (fyrstu þrjár vikurnar) en nemendur hafa aðgang að vefstofu á opnunartíma HFÍ í samtals 6 vikur til 30. apríl 2021. Námskeiðið hentar vel þeim sem þegar hafa kynnst vefnaði.