Vínviðarkarfa / Brauðkarfa - FULLBÓKAÐ

Vínviðarkarfa / Brauðkarfa

Kennari: Margrét Guðnadóttir.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.

Tími: 6. og 13.  febrúar - mánudagskvöld kl. 18 - 21.

Námskeiðsgjald: 22.500 kr. (20.250 kr. fyrir félagsmenn) – efni er innifalið. 

Unnin er karfa þar sem vínviður er uppistaðan / kanturinn.  Karfan er falleg á borði fyrir  brauð eða ávexti. Þessi aðferð gefur möguleika á að nota ýmsan efnivið úr náttúrunni, liti og annað efni. Skemmtileg karfa sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum.  Kennt verður að lita körfuna í lok námskeiðs.