1. desember á Árbæjarsafni

Í tilefni fullveldisdagsins þann 1. desember efna Árbæjarsafn, Danshópurinn Sporið, Félag harmonikuunnenda í Reykjavík, Heimilisiðnaðarfélag Íslands, Kvæðamannafélagið Iðunn og Þjóðdansafélag Reykjavíkur til fögnuðar á Árbæjarsafni.
Gestum gefst færi á að kynnast gömlu dönsunum, handverki, harmónikkum, kveðskap, þjóðbúningum, þjóðdönsum, þjóðlögum og þeim menningararfi sem iðkaður er af félögunum sem að viðburðinum koma auk þess að kynnast starfi félaganna. Á viðburðinum verða skemmtileg örnámskeið og kynningar þar sem hægt verður að læra grunnsporin í þjóðdönsum, kvæðalög og fleira.
Í tilefni dagsins hvetjum við fólk til að mæta á þjóðbúning, en hægt verður að fá ráðgjöf varðandi búninganotkun og hvernig koma megi eldri búningum í notkun.
Verið öll hjartanlega velkomin. Aðgangur er ókeypis.