Verslun HFÍ

VerslunVerslun Heimilisiðnaðarfélagsins er staðsett í Nethyl 2e.

Síminn er 551 5500 og netfangið [email protected].

Opnununartími: Verslunin er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 12 - 17 lokað er á föstudögum.

Í versluninni er hægt að fá allt efni og tillegg fyrir íslenska þjóðbúninga. Efni í búningana, svuntu- og skyrtuefni, kniplinga, skotthúfur, silkiklúta, útsaumsgarn og margt fleira tengt þjóðbúningum.

Ýmislegt til vefnaðar og flest það sem þarf af efnum og verkfærum í tengslum við námskeið HFÍ: 

Handverksbækur og blöð, t.d. ársrit félagsins, Hugur og hönd. 

Mikið úrval af jurtalituðu kambgarni til útsaums.

Upptalningin á vörum í versluninni er alls ekki tæmandi. Sjón er sögu ríkari. Starfsfólki verslunarinnar býður alla velkomna til skrafs og ráðagerða og veitir margvíslegar upplýsingar um það sem viðkemur þjóðbúningum, ýmsu handverki og heimilisiðnaði, hráefni, vinnubrögðum, handverksfólki og ítarefni.

Sendum hvert á land sem er.