Skyrta

SkyrtaSkyrta

Bæði karlar og konur notuðu áður fyrr milliskyrtu úr vaðmáli eða lérefti. Skyrtan var há í hálsinn, með löngum ermum og hnepptri líningu í hálsmáli og um úlnliði og slík skyrta er enn notuð við faldbúninga, eldri gerð upphluts og karlbúninga.Hún er oftast úr hvítu eða ljósleitu silki- eða bómullarefni. Skyrta 20. aldar upphluts er breytt. 

SkyrtuhnapparSkyrtuhnappar

Hnappar sem halda saman ermalíningum á upphlutsskyrtum. Nú oftast gerðir úr silfri sem stundum er gullhúðað. Algengastir eru kúptir hnappar og er hnappurinn tengdur með löngum hlekk við slétta rúnna plötu sem smeygt er í gegnum hnappagötin.

UpphlutsskyrtaUpphlutsskyrta

Skyrta við 20. aldar upphlut er oft úr hvítu eða ljósleitu silki eða bómullarefni en getur líka verið dökk. Stundum er skyrtan heil að framan en með smá klauf í hálsmáli. Í fyrstu var gat hún verið með kraga og jafnvel hafður klútur um hálsinn.