Skilmálar vefverslun

Skilmálar

 
Upplýsingar um fyrirtækið/söluaðilan
Verslun - Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Nethyl 2e, 110 Reykjavík
s. 551 5500 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar 1-5 virka daga eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Heimilisiðnaðarfélag Íslands ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Heimilisiðnaðarfélag Íslands áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis eða með tölvupósti.

Athugið að lokað er hjá Heimilisiðnaðarfélaginu frá 21. desember til 9. janúar. pantanir gerðar á þessum tíma verða afgreiddar 11. janúar. 

 Sóttar pantanir - hægt er að sækja net pantanir í verslun okkar í Nethyl 2e á opnunartíma verslunnar.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Verð sem birtast í vefverslun innifelur ýmist 11% eða 24% virðisaukaskatt en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. 
 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi
hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu
umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ekki er hægt að skila útsöluvöru né klipptri metravöru. 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000
og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.