Aðalfundur 5. maí

Aðalfundur Heimilisiðnaðarfélags Íslands verður miðvikudaginn 5. maí kl. 19.30.

Ársreikninga félagsins 2020 má nálgast hér.

Vegna samkomutakamarkanna verður fundurinn rafrænn. Á staðnum verður einungis stjórn og fundarstjóri / kjörstjóri en aðrir fundarmenn taka þátt með rafrænum hætti í gegnum forritið Zoom. Félagsmenn tilkynni þátttöku í tölvupósti á netfangið [email protected] eigi seinna er 3. maí. Fundarmenn fá sendan link á fundinn þegar kjörgengi hefur verið kannað. Hægt er að taka þátt í fundinum í tölvu eða snjallsíma, þátttaka er mjög einföld og ekki er þörf á sérstöku Appi eða forriti (einungis þarf að velja link í tölvupósti).

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins:

1. Formaður setur fundinn og stjórnar kosningu nefndar sem athugar kosningarétt fundarmanna og skilar áliti.
2. Formaður stjórnar kosningu fundarstjóra.
3. Fundarstjóri skipar fundarritara.
4. Fundarstjóri gefur yfirlýsingu um lögmæti fundar.
5. Skýrsla stjórnar og starfsnefnda.
6. Gjaldkeri félagsins leggur fram endurskoðaða reikninga og skýrir þá.
7. Umræður um skýrslur stjórnar og reikninga.
8. Lagabreytingar hafi komið tillaga þar um skv. 23 gr. 
9. Kosning aðalstjórnar og varastjórnar samkvæmt 14. gr.
10. Kosning fastanefnda, samkvæmt 21. gr.
11. Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs í senn og eins til vara til að endurskoða reikninga félagsins.
12. Ákvörðun um félagsgjöld næsta starfsárs, sbr. 7. gr.
13. Önnur mál.
 
Ársreikningar félagsins verða aðgengilegir á heimasíðunni viku fyrir aðalfund, þ.e. frá og með 28. apríl. Uppstillinganefnd vinnur að uppstillingu í stjórn og nefndir en félagsmenn geta gefið kost á sér, eða gert tillögur um aðra félagsmenn til kjörs í stjórn eða starfsnefndir eftir að hafa aflað samþykkis viðkomandi. Tillögur skulu vera skriflegar og berast skrifstofu félagsins a.m.k. viku fyrir aðalfund, þ.e. eigi síðar en 28. apríl á netfangið [email protected].
 
Vonumst til að þáttaka í fundinum verði góð þrátt fyrir að form hans sé nú annað en áður sökum aðstæðna.