HFÍ fer með starfsskyldur Þjóðbúningaráðs og hefur umsjón með vef ráðsins: buningurinn.is.
Félagið á aðild að heimilisiðnaðarsamtökum Norðurlanda, The Nordic Handicraft Association.
HFÍ gegnir ráðgjafandi hlutverki um varðveislu óáþreifanlegs menningararfs eða lifandi hefða samkvæmt samningi UNESCO frá 2003.
(Fyrir breytingu: 5. gr. Félagið á aðild að heimilisiðnaðarsamtökum Norðurlanda, Nordens husflidsforbund.)
Bókari eða gjaldkeri félagsins leggur fram endurskoðaða reikninga og skýrir þá.
(Fyrir breytingu: 6. Gjaldkeri félagsins leggur fram endurskoðaða reikninga og skýrir þá.)
Stjórn félagsins skipa sjö menn: formaður, varaformaður, þrír meðstjórnendur og tveir í varastjórn. Varamenn geta setið stjórnarfundi en hafa ekki atkvæðisrétt nema forföll séu í stjórn og þá fyrr sá varamaður sem fyrr var kosinn.
Stjórn er kosin með skriflegri kosningu á aðalfundi félagsins til tveggja ára. Formaður og varaformaður eru kosnir sérstaklega. Annað árið skal kjósa formann, tvo meðstjórnendur og einn mann í varastjórn. Hitt árið skal kjósa varaformann, einn meðstjórnanda og einn mann í varastjórn.
Allir félagsmenn eru kjörgengir til stjórnar en þó missa þeir kjörgengi sem setið hafa þrjú kjörtímabil í röð en öðlast kjörgengi aftur á næsta aðalfundi. Þeir sem kosnir eru formenn og varaformenn geta þó setið allt að 12 ár samfellt í stjórn.
Skuldlausir félagsmenn geta gefið kost á sér í stjórn félagsins eða í starfsnefndir þess. Félagsmenn geta gert tillögur um aðra félagsmenn til kjörs í stjórn eða starfsnefndir eftir að hafa aflað samþykkis viðkomandi. Tillögur skulu vera skriflegar og berast skrifstofu félagsins a.m.k. viku fyrir aðalfund.
Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skiptir stjórn með sér verkum, kýs ritara og gjaldkera.
Ritari gegnir ritarastörfum og heldur gerðabók.
Starfandi formaður / framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri félagsins í samvinnu við gjaldkera hvað fjárreiður félagsins varðar. Gjaldkeri skal leggja fram endurskoðaða reikninga eigi síðar en á síðasta stjórnarfundi fyrir aðalfund.
(Fyrir breytingu: Stjórn félagsins skipa fimm menn: formaður, varaformaður og þrír meðstjórnendur. Varastjórn félagsins skipa tveir menn. Sá varamaður sem fyrr er kosinn tekur fyrst sæti í stjórn.Stjórn og varastjórn er kosin með skriflegri kosningu á aðalfundi félagsins til tveggja ára. Formaður og varaformaður eru kosnir sérstaklega. Annað árið skal kjósa formann, tvo meðstjórnendur og einn mann í varastjórn. Hitt árið skal kjósa varaformann, einn meðstjórnanda og einn mann í varastjórn. Allir félagsmenn eru kjörgengir til stjórnar, en þó missa þeir kjörgengi sem setið hafa þrjú kjörtímabil í röð en öðlast kjörgengi aftur á næsta aðalfundi. Heimilt er þó að kjósa formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna, þótt þeir hafi setið þrjú kjörtímabil, og telst þá starfsaldur að nýju. Sama regla gildir um þann sem kosinn er úr varastjórn í aðalstjórn. Enginn skal þó sitja lengur en 12 ár samfellt í stjórn. Skuldlausir félagsmenn geta gefið kost á sér í stjórn félagsins eða í starfsnefndir þess. Félagsmenn geta gert tillögur um aðra félagsmenn til kjörs í stjórn eða starfsnefndir eftir að hafa aflað samþykkis viðkomandi. Tillögur skulu vera skriflegar og berast skrifstofu félagsins a.m.k. viku fyrir aðalfund. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skiptir stjórn með sér verkum, kýs ritara og gjaldkera. Ritari gegnir ritarastörfum og heldur gerðabók.Gjaldkeri hefur umsjón með fjárreiðum félagsins í samræmi við ákvörðun stjórnar. Hann skal leggja fram endurskoðaða reikninga eigi síðar en á síðasta stjórnarfundi fyrir aðalfund. Að öðru leyti ákveður stjórn hverju sinni skiptingu verkefna milli stjórnarmanna.)
21. grein: fastanefndir
Nýrri nefnd bætt við: UNESCO nefnd
25. gr.
Með lögum þessum, sem samþykkt eru á aðalfundi félagsins . maí 2026, falla úr gildi eldri lög félagsins.
