Handa á milli - til sölu í verslun HFÍ!

Hiphiphúrrra! Bókin Handa á milli - Heimilisiðnaðarfélag Íslands í hundrað ár er komin út. Höfundur er Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur en Sögufélag útgefandi.

Saga Heimilisiðnaðarfélagsins 1913-2013 endurspeglar þróun handverks með breyttri samfélagsgerð. Bókin er 300 blaðsíður með yfir 150 ljósmyndum auk leiðbeininga úr handraðanum sem handverksfólk mun hafa unun að. Bókin er til sölu á 8.415 kr. (fullt verð er 9.900 kr.) í verslun félagsins í Nethyl 2e. Opnunartími er mánudaga - fimmtudaga kl. 12-18 og föstudaga kl. 12-16.  

Á aldarafmæli Heimilisiðnaðarfélags Íslands árið 2013 færði Jakobína Guðmundsdóttir fyrirverandi formaður félaginu veglega peninagjöf til ritunar á sögu félagsins. Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur var fengin til verksins og samið var við Sögufélag um útgáfu. Í bókinni er sögð aldarsaga Heimilisiðnaðarfélagsins 1913–2013 en í sögunni endurspeglast hvernig félagið hefur þróast í takt við samfélagsbreytingar með fjölbreyttu starfi: námskeiðum, norrænu samstarfi, útgáfustarfsemi og verslunarrekstri.

Undir lok 19. aldar kviknaði umræða um mikilvægi þess að koma á fót heimilisiðnaði á Íslandi. Með iðnbyltingunni tóku vélar og verksmiðjur við framleiðslu gamla sveitasamfélagsins og í breyttum heimi þurfti að endurskilgreina hugmyndir um hefðbundið handverk. Talsmenn heimilisiðnaðar litu þá til norrænna fyrirmynda og upp úr þeim jarðvegi spratt Heimilisiðnaðarfélag Íslands.

Áslaug Sverrisdóttir fæddist í Reykjavík árið 1940. Hún lauk prófi frá kennaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og doktorsprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands með viðkomu í University of St Andrews, Skotlandi. Hún hefur starfað sem safnvörður við munadeild Árbæjarsafns og stundakennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Myndlistaskóla Reykjavíkur og Heimilisiðnaðarskólann. Þá hefur hún ritað fjölda greina í bækur og tímarit.