Íslensk Sjónabók kom fyrst út árið 2009 í ritstjórn Guðmundar Oddar Magnússonar og Birnu Geirfinnsdóttur. Kveikjan að útgáfu bókarinnar var erindi Goddar "Rýnt í skraut og mynstur í þjóðararfinum" á norræna Heimilisiðnaðarþinginu á Íslandi árið 2007, en í kjölfar þingsins var ákveðið að gefa út þau tíu sjónabókarhandrit sem varðveitt eru á Þjóðminjasafni Íslands og Þjóðminjasafni Danmerkur. Heimilisiðnaðarfélag Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Listaháskóli Íslands gerðu með sér samstarfssamning og skiptu með sér verkum; Heimilisiðnaðarfélagið yrði útgefandi bókarinnar og myndi fjármagna hana, Þjóðminjasafn Íslands veitti aðgang að sjónabókarhandritum og Listaháskóli Íslands hafði yfirumsjón með vinnu nemenda á teikningu munstranna á stafrænu formi.
Síðan þá hefur bókin verði endalaus uppspretta nýrra hugmynda á gömlum grunni. Munstrin hafa nýst listafólki, hönnuðum og handverksfólki og verið notuð í kennslu bæði hér heima og erlendis.
Íslensk sjónabók hefur verið ófáanleg um nokkurra ára skeið. Lengi hefur staðið til að prenta hana aftur en við fráfall Godds í upphafi árs 2026 kom bylgja af fyrirspurnum um bókina sem Heimilisiðnaðarfélaginu fannst nauðsynlegt að bregðast við. Prentkostnaður á bókinni er hár og því leitum við til almennings, fyrirtækja og stofnanna að styrkja endurútgáfu bókarinnar sem verður að þessu sinni tileinkuð minningu Godds.
Opnað hefur verið fyrir hófjármögnun í gegnum Karolinafund. Við vonum að bókin komi aftur út í haust.
