Við munum fara með rútu frá Árbæjarsafni klukkan 09:30 niður í Ráðhús Reykjavíkur þar sem við munum festa skotthúfur og lagfæra slifsi. Klukkan 10:30 göngum við inn á Austurvöll frá Ráðhúsinu og hlýðum á hátíðarávörp og tónlistarflutning. Að athöfn lokinni söfnumst við saman í Alþingisgarðinum þar sem myndataka með Fjallkonu Reykjavíkur fer fram. Úr Alþingisgarðinum liggur leið okkar á veitingastaðinn Hjá Jóni við Austurvöll þar sem boðið verður upp á dögurð með kampavíni:
Egg Royal
Reyktur lax, hleypt egg, smjörsteikt spínat, ensk múffa og sítrónu-hollandaise
Súkkulaðibrúnka
Omnom súkkulaði, súkkulaðisósa, vanilluís og ber
Kampavín
Klukkan 13:30 verður farið með rútu frá Ráðhúsi Reykjavíkur upp í Árbæjarsafn, þar sem boðið verður upp á hátíðardagskrá. Þjóðbúningaklæddir gestir fá frítt inn á safnið í tilefni dagsins!
Verð fyrir þátttöku í rútu og dögurð eru 11.000 krónur.
Sé þess óskað, er hægt að taka sæti á Austurvelli eingöngu og sleppa rútuferð og dögurð.
Skráning er nauðsynleg á þennan viðburð, smellið hér til að nálgast eyðublað:
https://www.heimilisidnadur.is/is/moya/formbuilder/index/index/thjodhatidardagurinn-2026
