Aðalfundur HFÍ 2026

Aðalfundur Heimilisiðnaðarfélags Íslands verður haldinn í húsakynnum félagsins að Nethyl 2e þriðjudaginn 12. maí klukkan 18:00. Aðalfundur er opinn öllu félagsfólki Heimilisiðnaðarfélagsins.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins:
1. Formaður setur fundinn og stjórnar kosningu nefndar sem athugar kosningarétt fundarmanna.
2. Formaður stjórnar kosningu fundarstjóra.
3. Fundarstjóri skipar fundarritara.
4. Fundarstjóri gefur yfirlýsingu um lögmæti fundar.
5. Skýrsla stjórnar og starfsnefnda.
6. Bókari félagsins leggur fram reikninga og skýrir þá.
7. Umræður um skýrslur stjórnar og reikninga.
8. Lagabreytingar hafi komið tillaga þar um skv. 23 gr.
9. Kosning aðalstjórnar og varastjórnar samkvæmt 14. gr.
10. Kosning fastanefnda, samkvæmt 21. gr.
11. Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs í senn og eins til vara til að endurskoða reikninga félagsins.
12. Ákvörðun um félagsgjöld næsta starfsárs, sbr. 7. gr.
13. Önnur mál.
Ársreikningar félagsins verða aðgengilegir á heimasíðunni viku fyrir aðalfund, þ.e. frá og með 5. maí.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á aðalfundi!