Flóres saga ok Blankiflúr er frönsk miðaldarsaga sem barst til Norðurlanda á 13. öld, og er meðal elstu ástarsagna sem þýddar hafa verið á norrænt tungumál.
Sagan segir frá ungum elskendum, Flóres og Blankiflúr, sem alast upp saman og bindast sterkum ástarböndum þrátt fyrir að koma úr ólíkum heimum. Flóres er sonur heiðins konungs, en Blankiflúr er kristin ambátt. Ást þeirra mætir andstöðu og aðskilnaði, en Flóres leggur í hættulega ferð til að finna hana aftur.
Í tilefni af 750 ára afmæli flæmsku þýðingar sögunnar var ráðist í stórt menningarverkefni í Assenede í Belgíu. Sagan skyldi endurútgefin á flæmsku og 100 metra langur refill saumaður upp úr sögunni. Jafnframt voru saumaðar myndir í öllum þeim löndum sem eiga handrit að sögunni á sínu tungumáli.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands tók að sér verkefnið fyrir Íslands hönd og saumuðu þrír sjálfboðaliðar myndina sem Kristín Ragna Gunnarsdóttir teiknaði, þær Kristín Bjarnadóttir, Sigrún Helgadóttir og Lilja Guðmundsdóttir.
Sunnudaginn 26. apríl klukkan 13:30 segja formaður Heimilisiðnaðarfélagsins, listakonan á bakvið teikninguna og einn af útsaumurunum, þær Kristín, Kristín og Kristín, frá útsaumsverkinu sem verður skilað til Assenede í Belgíu í lok mánaðarins.
Verið öll hjartanlega velkomin í Nethyl 2e, sunnudaginn 26. apríl klukkan 13:30!