Fyrirlestur Sigrúnar Helgadóttur á Þjóðminjasafni Íslands

Sunnudaginn 4. október mun Sigrún Helgadóttir halda fyrirlestur um íslenskan brúðarbúning sem varðveittur er í Viktoríu og Alberts safninu í London, en er til sýnis á yfirstandandi sýningu Þjóðminjasafns Íslands Með sögu í farangrinum – Brúðarbúningurinn.
 
Sigrún Helgadóttir er kennari og líffræðingur með framhaldsnám í stýringu náttúruauðlinda og umhverfismennt. Sigrún fékk ung áhuga á þjóðbúningum. Hún hefur lengi verið félagi í Heimilisiðnaðarfélagi Íslands og var formaður þess um árabil. Hún heillaðist af brúðarbúningi Viktoríu og Alberts safnsins þegar hann var lánaður hingað til lands og sýndur í Þjóðminjasafninu árið 1969. Sigrún ákvað að sauma sér slíkan búning og leitaði til Elsu E. Guðjónsson textílsérfræðings um aðstoð. Elsa lét hana fá snið og leiðbeindi henni við að blómstursauma bekk í faldbúningspils og svuntu.
‍
Síðar, með hálfsaumaðan faldbúning í kistu, hvatti Sigrún Heimilisiðnaðarfélagið til að kenna faldbúningasaum og um aldamót hóf vinnuhópur félagsins, Faldafeykir, að grúska í gerð slíkra búninga. Í hópnum voru um fimmtán konur sem hittust reglulega, lásu sér til, skoðuðu gamla búninga á söfnum, grúskuðu og skiptust á skoðunum. Í kjölfarið hófust faldbúningsnámskeið hjá Heimilisiðnaðarfélaginu sem margar konur hafa sótt og komið sér upp fjölbreyttum faldbúningum í samræmi við gömul snið og hefðir. Árið 2013 kom út bók Sigrúnar, Faldar og skart. Faldbúningurinn og aðrir íslenskir þjóðbúningar.
 
Í umfjöllun um búninga tengir Sigrún gjarnan þróun þeirra við umhverfisbreytingar í kjölfar náttúruhamfara og harðinda. Hún hefur líka reynt að átta sig á sögu brúðarbúningsins fagra og byggir þar fyrst og fremst á rannsóknum og greinum Elsu E. Guðjónsson en enginn hefur haft tækifæri til að rannsaka brúðarbúning V&A svo ítarlega sem hún.Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn.
 
Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupdegi. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.‍