Funda- og fræðslunefnd hefur skipulagt spennandi ferð fyrir félaga í Heimilisiðnaðarfélaginu! Við leggjum í'ann laugardaginn 10. október og skoðum nokkra vel valda staði á Suðurlandi! Athugið að félagsmanna afsláttur virkjast um leið og kennitala félagsmanns er slegin inn. Ef ekki næst lágmarks þátttaka fyrir 7. október fellur ferðin niður og við endurgreiðum þeim sem skráðir eru.
Dagskrá:
Laugardagurinn 10. október
09:00 - Mæting í Nethyl 2e (vinsamlegast leggið bílum fjær húsinu svo að nemendur Heimilisiðnaðarskólans hafi greiðan aðgang)
09:15 - Lagt af stað frá Nethyl
10:30-13:30 - Íslenska Ullarvinnslan á Selfossi. Við heimsækjum vinnustofu og samkomustað Þingborgarhópsins.
12:00-13:30 - Hádegismatur á Sólheimum.
15:00 - 17:00 Skógarsafn. Við fáum leiðsögn um safnið klukkan 16:00 en einnig verður hægt að rölta um og skoða safnið á eigin hraða. Skógarsafn býr yfir ríkulegum safnkosti, þar á meðal munum sem tengjast heimilisiðnaði, sjósókn og landbúnaði. Í húsmuna- og handverksdeild má sjá marga hluti frá daglegu lífi fyrr á öldum, húsbúnað og skraut. Í náttúrugripadeild má finna ýmis uppstoppuð dýr og kynjaverur úr einkasafni Andrésar H. Valberg.
17:30-18:00 Sveitabúðin Una á Hvolsvelli. Í búðinni er að finna fjölbreyttar gjafavörur, handverk og mat úr héraði. Þar er einnig hægt að fá kaffi og bakkelsi. Valborg Jónsdóttir og fjölskylda reka verslunina.
19:30 - Áætluð heimkoma í Nethyl.
Skráið ykkur og greiðið fyrir ferðina hér:
