Heimsókn í Hallgrímskirkju

Á laugardaginn 19. september klukkan 13:00 er félögum í Heimilisiðnaðarfélaginu boðið að koma í heimsókn í Hallgrímskirkju!

Þar ætlum við að skoða allskyns textíl sem er í eigu kirkjunnar. Höklar kirkjunnar verða dregnir fram ásamt öðru áhugaverðu.

Við höfum fengið leyfi til að skoða mjög sérstakan hökul og altarisklæði sem er aðeins notað á föstudaginn langa. Á þeim hökli eru útsaumaðar myndir úr píslargöngu Drottins ásamt upphafsversi úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Altarisklæðið ber mynd pelíkanans. Þessa einstæðu kirkjugripi hannaði og saumaði listakonan Unnur Ólafsdóttir. Hún færði kirkjunni settið að gjöf ásamt manni sínum, Óla M. Ísakssyni. Unnur var þekkt fyrir að vanda mjög til efnisvals og nota gjarnan íslenskt hráefni; sem dæmi notaði hún hör (sem ræktaður hafði verið á Bessastöðum) við gerð þessara gripa.

Við gerum einnig ráð fyrir að ganga um kirkjuna með leiðsögn ásamt því að gestir eru velkomnir að fara í kirkjuturninn. Kaffi og með því verður í boði í sal kirkjunnar að lokinni yfirferð.

Við hvetjum gesti til að fara að lokinni heimsókn í Salinn í Kópavogi og heimsækja Þjóðlistahátíðina Vöku, en þar verður þjóðlistamarkaður og Krakkavaka frá klukkan 16:00 þar sem boðið verður upp á tónleika fyrir alla fjölskylduna.

Sjáumst í Hallgrímskirkju!