Laugardaginn 6. júní klukkan 15:00 verður haldin kynning í sal Heimilisiðnaðarfélagsins að Nethyl 2e á faldbúningum 18. og 19. aldar, en haustið 2026 hefst námskeiðaröð sem miðar að því að kenna nemendum mismunandi skreytingaraðferðir fyrir faldbúninga. Áhugasamir um þessi námskeið geta skráð sig á netfanginu skoli@heimilisidnadur.is en við gerum ráð fyrir að nemendur ljúki við sinn faldbúning á þremur árum.
Ekki þarf að ská sig fyrir kynninguna laugardaginn 6. júní, verið hjartanlega velkomin í Heimilisiðnaðarfélagið!
