Kynning: prjónuð peysufatapeysa

Á vorönn býður Heimilisiðnaðarfélag Íslands upp á nýtt námskeið í prjónaðri peysufatapeysu. Hér er ekki um hreina endurgerð að ræða, heldur nútíma útfærslu á peysu sem áður fyrr var prjónuð á marga, örfína prjóna.
 
Á þessari kynningu gefst áhugasömum kostur á að skoða peysurnar og fræðast um ferlið hvernig eldri peysur voru rannsakaðar svo hægt væri að skrifa verklýsingar fyrir nýjar peysur, prjónaðar af nútíma konum.
 
Athugið að hér er ekki um hefðbundna prjónauppskrift að ræða, heldur er peysan prjónuð utan um eigandann og fá nemendur ráðgjöf hjá sérfræðingum hvernig peysan skuli mótuð.
Verið öll hjartanlega velkomin í Heimilisiðnaðarfélag Íslands laugardaginn 5. desember klukkan 14:00!