Leiðsögn um sýningu Rögnu Fróða

Laugardaginn 21. mars klukkan 12:00 ætlar Ragna Fróða að vera með leiðsögn á sýningunni sinni Bergmál í Hafnarborg. Leiðsögnin er fyrir félaga Heimilisiðnaðarfélagsins og velunnara án greiðslu. Eftir leiðsögn er hægt að setjast niður á veitingastaðnum Krydd sem er í sama húsi og fá sér hádegismat í góðum félagsskap.

Verið hjartanlega velkomin í Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði.