Prjónakaffi 4. desember: Today I feel

íðasta prjónakaffi ársins verður haldið fimmtudagskvöldið 4. desember í sal Heimilisiðnaðarfélagsins að Nethyl 2e. Prjónakaffinefndin tekur á móti gestum með rjúkandi heitt kaffi á könnunni og súkkulaðimola en kynning kvöldsins verður í boði vinkvennana Margrétar Maríu og Þorbjargar sem saman lita garn undir nafninu Today I feel.
Hér segir Þorbjörg frá þeim stöllum:
Today I feel erum við, Margrét María og Þorbjörg. Við erum tvær vinkonur sem fórum að lita garn saman af því að við elskum fallegt handlitað garn og fallega handgerða hluti.
Við prjónum mikið sjálfar og skiljum vel þá vinnu sem fer í að búa til handgerðar flíkur. Við trúum því að til þess að flíkurnar fái notið sín sem best verði að nota gæða efni. Þess vegna notum við eingöngu sérvalið hágæða garn sem grunn í litanir okkar.
Við litum eftir því hvernig okkur líður hverju sinni og teljum að tilfinningar spili stóran þátt í sköpun en einnig að sköpun hafi áhrif á tilfinningar okkar. Því erum við ekki með fastar litagerðir heldur litum við í lotum eftir því hvernig við erum stemmdar hverju sinni. Þegar lotan er uppseld er óvíst hvort sama litagerð verði endurtekin, stundum endurtökum við liti, stundum ekki, allt eftir því hvað okkur langar að lita hverju sinni. Við mælum því með að kaupa nægilegt garn í verkefnið strax í upphafi, því það er alls ekki víst að sami litur verði til seinna.
Við vonum að þið njótið þess að búa til draumaflíkur fyrir fólk sem ykkur er kært (ykkur sjálf líka) úr garninu okkar.
Húsið opnar klukkan 19:00 og kynningin hefst klukkan 20:00. Verið hjartanlega velkomin til okkar í Heimilisiðnaðarfélag Íslands!