Prjónakaffi 4. nóvember: Vetrar Garn

Miðvikudagskvöldið 4. nóvember býður Heimilisiðnaðarfélagið upp á síðasta prjónakaffi ársins. Við fáum til okkar góðan gest frá Akranesi!
 
Fanney byrjaði að prjóna í janúar 2021. Áhugamálið þróaðist þó fljótt út í rekstur og í október 2024 opnaði Fanney prjónaverslun á Akranesi: Vetrar Garn.
Fanney ætlar að segja okkur sína sögu; hvernig upphafið var að prjónaskapnum, hvaða áskorunum hún mætti á leiðinni og hverjir draumar hennar eru fyrir framíðina og verslun hennar Vetrar Garn.
 
Húsið opnar klukkan 19:00 og kynningin hefst klukkan 20:00. Prjónakaffinefndin verður á staðnum og býður upp á kaffi, gos og súkkulaði á vægu verði. Verið hjartanlega velkomin miðvikudagskvöldið 4. nóvember í Heimilisiðnaðarfélagið!