Miðvikudaginn 6. maí fáum við til okkar góðan gest sem hefur ástríðu fyrir lopapeysumunstrum!
Í tuttugu ár hefur Rakel prjónað nánast eingöngu lopapeysur, en þegar hún lenti í kulnun fyrir þremur árum hóf hún að hanna sín eigin munstur og deila með öðrum í gegnum Instagram reikninginn sinn knitterfromiceland. Í kjölfarið stofnaði hún síðuna lopamunstur.is þar sem hægt er að kaupa fjölbreyttar og skemmtilegar lopapeysu uppskriftir Rakelar.
Prjónaskapurinn hjálpaði Rakel að finna innri ró og gaf henni orku til að takast á við daginn, en segja má að hún hafi prjónað sig úr kulnun! Rakel ætlar að segja okkur frá ástríðunni sem bjargaði henni og ánægjunni sem hún hefur af handverkinu.
Húsið opnar klukkan 19:00 og kynningin hefst klukkan 20:00. Verið hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir, miðvikudaginn 6. maí í Nethyl 2e!
