Prjónakaffi 7. október: ÍSTEX kemur í heimsókn!

Þá er komið að einum vinsælasta prjónakaffiviðburði vetrarins!

Miðvikudaginn 7. október mætir ÍSTEX til okkar í heimsókn, með nýjustu LOPI bókina!

Á hverju hausti gefur ÍSTEX út uppskriftabók fulla af nýjum og spennandi uppskriftum sem prjónaðar eru úr íslenskri ull frá ÍSTEX. Prjónahönnuður ÍSTEX, Védís Jónsdóttir, kemur með nokkrar vel valdar flíkur og segir frá hugmyndavinnunni á bakvið nýjustu bókina.

Húsið opnar klukkan 19:00 og kynningin hefst klukkan 20:00. Það verður hægt að kaupa nýju ÍSTEX bókina, og auðvitað kaffi og súkkulaði. Verið hjartanlega velkomin!