Prjónakaffi miðvikudaginn 4. mars: Linda Björk
04.03 -
04.03
Viðburðir
Það verður ekkert prjónakaffi hjá okkur í febrúar en þið getið látið ykkur hlakka til miðvikudagsins 4. mars!
Miðvikudaginn 4. mars klukkan 20:00 heimsækir Linda Björk Eiríksdóttir Heimilisiðnaðarfélagið og segir frá samstarfi sínu og prjónahönnuðarins Stephen West, en þau hafa unnið saman að verkefnum í fjöldamörg ár. Við fáum að kynnast Lindu Björk og því sem veitir henni innblástur í prjóni og lífinu öllu!
Húsið opnar klukkan 19:00, það verður heitt á könnunni og súkkulaði í boði á vægu verði. Sjáumst næst á prjónakaffi miðvikudaginn 4. mars!