Fyrsta prjónakaffi haustsins verður haldið miðvikudaginn 9. september! Að venju fáum við til okkar góðan gest, og að þessu sinni ætlar Brynja Björk prjónahönnuður að segja okkur frá sinni ástríðu, sem eru prjónuð sjöl!
"Ég lærði að prjóna jólin sem ég var 6 ára og hef prjónað síðan þá. Undanfarin ár hafa sjöl átt prjóna-hug minn allan. Sjal er skemmtilegt prjónaform sem fylgir ekki föstum reglum. Árið 2019 skrifaði ég mitt fyrsta sjal, einungis til að sjá hvort að ég gæti það og úr varð Safíra. Síðan þá eru sjölin orðin sextán. Ég hef rosalega gaman af að vinna með afganga og nýta allt sem til er í sjöl. Ónýttur spotti getur svo auðveldlega fengið hlutverk í sjali. Ég hlakka til að sjá ykkur og sýna ykkur sjöl í mismunandi lögun og litum."
Húsið opnar klukkan 19:00 og kynningin hefst klukkan 20:00. Prjónakaffinefndin verður á staðnum með heitt á könnunni og súkkulaði með á vægu verði.
Verið öll hjartanlega velkomin á prjónakaffi í Heimilisiðnaðarfélaginu!