Þjóðbúningahátíð á Þjóðminjasafninu

Helgina 5.-6. september verður sannkölluð þjóðbúningahátíð í Þjóðminjasafni Íslands. Á hverju hausti fagna Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Þjóðminjasafnið íslenska þjóðbúningnum með hátíð kringum dánardag Sigurðar málara Guðmundssonar. Sigurður var fyrsti sérstaki umsjónarmaður Þjóðminjasafns Íslands, sem þá hét Forngripasafnið, og átti stóran þátt í að móta og endurverkja íslenska þjóðbúninginn á 19. öld.

Í tilefni hátíðarinnar eru landsmenn og aðrir gestir hvattir til að mæta á Þjóðminjasafnið í íslenska þjóðbúningnum eða búningi sinnar þjóðar. Þjóðminjasafnið mun bjóða þeim sem mæta í þjóðbúningi endurgjaldslaust á sýningar og viðburði dagsins.

Dagskrá, laugardagur 5. september

Kl. 14-15: Handverksfólk frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands og lifandi tónlist í sölum safnsins
Kl. 15-16: Þjóðdansar í anddyri safnsins
Kl. 16: Gengið út í Hólavallakirkjugarð með blómsveig að leiði Sigurðar málara