Handverksnámskeið fyrir börn í ágúst 2020

Að venju verður boðið upp á handverks­námskeið fyrir 8 - 12 ára börn í sumar. Það jafnast fátt á við að skapa fallega hluti með eigin höndum í góðum félagsskap og notalegu umhverfi. Haldin verða tvö nám­skeið, 4.-7. ágúst (4 dagar) og 10.-14. ágúst (5 dagar) kl. 9-16 í húsnæði HFÍ í Nethyl 2e og á Árbæjarsafni.

Námskeiðsgjald fyrri vikuna er 28.900 kr. (26.000 kr. fyrir félagsmenn) - en þá seinni 36.200 kr. (32.600 kr. fyrir félagsmenn).  ATHUGIР- 10% systkinaafsláttur og 20% afsláttur til þeirra sem taka þátt báðar vikurnar. Verð 52.100 kr. fyrir 9 daga námskeið fyrir félagsmenn (í stað 65.200 kr). Skráning á [email protected]