Hvað er knipl?

Prjónakaffi verður í beinu streymi á veraldarvefnum fimmtudaginn 8. apríl kl. 20

Tengill á viðburðinn hér. 

Títuprjónar og kefli, krossbragð og snúningur? Út á hvað gengur knipl og hvernig er yfirhöfuð hægt að skilja þetta? Knipl er tilkomumikið handverk sem lítur út fyrir að vera óyfirstíganlega flókið en er í raun einfalt. Þær Kristín Vala og Snæfríður munu leiða okkur í gegnum alla þessa þræði og sýna að það er vit í vitleysunni.

Heimilisiðnaðarfélag Íslands hefur um árabil staðið fyrir prjónakaffi fyrsta fimmtudagskvöld í mánuði. Vegna samkomutakmarkanna hefur verið brugðið á það ráð að hafa prjónakaffið í beinu streymi á netinu. Í febrúar og mars var Skotthúfa frú Auðar á dagskrá, í apríl er knipl og í maí er útsaumur Karólínu á dagskrá.