Norrænar handverksbúðir

Young Craft 2020
Young Craft 2020

BÚÐUNUM SEM VERA ÁTTU SUMARIÐ 2020 HEFUR VERIÐ FRESTAÐ TIL 2021 - vegna Covid-19!

Nýjar dasetningar eru: 30.06.-04.07.2021

Dagana 30. júní - 4. júlí 2021 verða handverksbúðir fyrir ungt fólk á aldrinum 16-22 ára í Skjern í Danmörku. Þátttaka í búðunum sjálfum kostar 55 evrur (tæplega 8.000 kr.) en sá kostnaður er greiddur við skráningu (sem hefur verið frestað fram á vorið 2021). Innifalið í þátttökugjaldi er fullt fæði og húsnæði ásamt námskeiðsgjöldum. Auk þátttökugjalds er kostnaður við ferðir, þ.e. flug til Kaupmannahafnar + lest til Skjern (eða flug beint til Billund ef það er mögulegt). Hver þátttakandi fær 200 evru ferðastyrk frá Nordisk kulturfond og er því gert ráð fyrir að ferðakostnaður sé í kringum 50.000 kr. Aðeins eru 9 pláss í boði. Þátttakendur velja eitt aðalnámskeið (og einn vara valkost) sem varir í tvo daga. Að auki eru sameiginlegar smiðjur, partýkvöld, skoðunarferð o.fl. Námskeiðin sem boðið er upp á eru eldsmíði, trérennismíði, spírala skreytingar, himmeli óróar, blúnduprjón, textíl endursköpun, fataviðgerðir. Fararstjóri hópsins er Ragnheiður Valgerður Sigtryggsdóttir. Hún var einnig farastjóri í samskonar ferð sumarið 2018 þegar 8 ungmenni frá Íslandi tóku þátt í frábærri upplifun í Noregi. Kennari fyrir Íslands hönd er Snæfríður Jóhannsdóttir sem kennir prjón. Skráning fer fram á netfangið: [email protected] Nánari upplýsingar má nálgast hér.