Nýjar útsaumspakkningar komnar!

Í upphafi árs var ákveðið að ráðast í endurútgáfu á Íslensku Sjónabókinni, en hún hafði verið ófáanleg um langt skeið. Í tilefni af endurútgáfunni höfðum við samband við Láru Magneu Jónsdóttur, textílhönnuð, um hönnun tíu nýrra útsaumspakkninga. Félagið hefur áður átt í farsælu samstarfi við Láru Magneu, en hún hannaði öll munstur fyrir Krosssaum Karólínu.

Valin voru tíu munstur úr Sjónabókinni, eitt úr hverju handriti bókarinnar, og annaðist Lára Magnea allar útfærslur og val á litum, auk þess sem hún gaf þeim nöfn með vísun í þann stað eða sókn þar sem handiritin áttu uppruna sinn. 

Fyrstu fjórar pakkningarnar eru nú komnar í sölu og þær heita Hólar, Hruni, Móeiðarhvoll og Barð!

Útsaumspakkningarnar eru nú fáanlegar í vefverslun okkar og í verslun okkar að Nethyl 2e.